Búlgaría
Lagið Water í flutningi Elitsa Todorova & Stoyan Yankulov er hið fínasta etnískt danslag. Ég fíla það nokkuð vel og vona að það komist áfram.
Ísrael
Hljómsveitin Teapacks flytur lagið Push the button sem er eiginlega ekki lag heldur bútasaumur af hinum ýmsu lagabútum. Hver bútur er svo sem nógu sjarmerandi en heildin virkar bara ekki alveg – hræðir mig meira en gleður. Gæti samt alveg slysast í gegn fyrir fíflagang áhorfenda.
Kýpur
Ein af uppáhaldsjúrósöngkonunum mínum Evridiki keppir fyrir Kýpurbúa í þriðja sinn í ár.Vídeóið bendir til að hún hafi slysast í svo sem eins og eitt botox-partý, og ekkert að því, Lagið heitir Comme ci, comme ça og er nú ekki í sama klassa og 90s lögin hennar, en mér finnst það alveg ágætt (inni á topp 10 í ár – en það segir meira um gæði laganna í ár en þetta lag svo sem). Held samt að það komist ekki áfram.
Hvíta-Rússland
Held að Dmitry Koldun sé sætasti flytjandinn í ár, og lagið Work your magic er grípandi en samt bara ekkert spes að mínu mati. Held samt að hann komist örugglega áfram!
Ísland
Mér finnst enski textinn við Valentine Lost með Eiríki Haukssyni mun betri en hrákasmíð Skerjafjarðarskáldsins. Lagið er samt ekkert frábært frábært, en ég held að karlinn eigi alveg eftir að komast áfram.
Georgía
Lagið My Story með Sopho er kannske ekki það sigurstranglegasta í keppninni, en Georgíubúar geta verið stoltir af að senda svona flott lag í fyrsta skipti sem þeir eru með. Vona að það komist áfram og geri góða hluti, en held að það verði einhvers staðar um miðbik forkeppninnar.
Svartfjallaland
Þetta er í fyrsta skipti sem Svartfjallaland keppir án samvinnu við Serbíu og er fulltrúi þess Stevan Faddy með lagið Ajde kroci. Viðlagið er mjög júgó-grípandi, en lagið er bara þokkalega lélegt. Það ætti samt að komast upp úr forkeppninni út á öll júgó-atkvæðin þvert yfir álfuna.
Sviss
Svisslendingar ætla sér að vinna í ár, og senda júrótrash Pet Shop Boys lagið Vampires are alive í flutningi DJ BoBo. Allt í lagi, vídeóið er mjög flott en lagið nokkuð átakalítið. Held að það standi og falli með sviðsetningunni – ef þeim tekst að endurskapa stemmninguna úr vídeóinu gæti það alveg unnið en annars jafnvel bara dautt í forkeppninni.
Moldavía
Lagið Fight er alveg þokkalegasta rokklag í svona Pat Benatar/finnskum 80s stíl. Aðalvandinn er að söngkonan Natalia Barbu virðist ekki alveg skilja hvað lagið fjallar um og trúir ekki alveg á það.
Holland
Söngkonan Edsilia Rombley ætlar að reyna að koma Hollandi aftur upp á topp 5. Að mínu mati er lagið On top of the world betra en lagið sem hún söng 1998 og náði 4. sæti. Held samt að hún sitji eftir þegar símakosningin er búin, lagið er fullátakalítið. Vona samt að hún komist áfram.
Albanía
Lagið Hear my plea keppir fyrir Albaníu í ár. Flytjendurnir Aida & Frederik Ndoci eru frábærir söngvarar en lagið virkar dálítið skringilega á mig, virkar betur þegar maður hlustar en horfir ekki á þau. Held samt að það komist ekki áfram þótt Albanir eigi sér mjög góða nágranna og vini um alla Evrópu.
Danmörk
Danir reyna að vinna með dragdrottningunni DQ sem flytur lagið Drama Queen. Þetta er allt í lagi lag – textinn er fáránlegur – en dragdrottningin sjálf virkar eins og henni sé alveg sama! Vona að hún verði í betra stuði í Helsinki en ef ekki – þá deyr lagið á sviðinu! Og ég held að það gerist – komist þess vegna ekki áfram.
Króatía
Bara eitt orð að segja um lagið Vjerujem u ljubav með Dragonfly feat. Dado Topic: HRYLLINGUR!
Pólland
Það er spurning hvort hægt sé að kalla lagið Time to party í flutningi söngflokksins The Jet Set lag með réttu, þetta er meira eins og syrpa af nokkrum músíkstílum, ekki alveg eins mikill bútasaumur og ísraelska lagið, og alla vega skárra í heild. En samt ekkert of gott. Held að það eigi lítinn séns að komast áfram.
Serbía
Serbía keppir í fyrsta sinn án Svartfjallalands. Söngkonan Marija Šerifovic lítur út eins og Rosie O’Donnell en syngur mjög vel og lagið Molitva er eitt af bestu lögunum í keppninni. Ef hún verður smekklega til fara á sviðinu held ég að hún vinni.
Tékkland
Tékkar keppa í fyrsta sinn í ár, en ég efast um að hljómsveitin Kabát nái að gera stóra hluti með rokklaginu Malá dáma. Það er bara ekki nógu gott!
Portúgal
Söngkonan Sabrina syngur slagarann Dança comigo (vem ser feliz) sem fæstir spá góðu gengi. Ég held aftur á móti að tími Portúgals sé kominn og spái þessu lagi inn á Topp 3!!! Mér finnst það alla vega æði – besta lag sem þeir hafa sent síðan 1998.
Makedónía
Makedónía á alltaf öruggt sæti í úrslitunum fyrir lagið Mojot svet sem ég verð að segja að er fyrsta makedónska lagið sem ég hef heyrt hingað til sem ég fílaði strax við fyrstu hlustun. Veit ekki hvað það þýðir fyrir söngkonuna Karolinu, en held að það eigi eftir að vera inni á Topp 10.
Noregur Söngkonan Guri Schanke er fín söngkona en lagið Ven a bailar conmigo er bara ömurlegt! Trúi ekki að það eigi neinn séns á að komast áfram.
Malta
Það er eitthvað mjög grípandi við lagið Vertigo sem söngkonan Olivia Lewis flytur, en samt... Það pirrar mig! Held að það eigi ágætan séns á að komast áfram.
Andorra
McFly-eftirhermurnar í Anonymous flytur lagið Salvem el món. Mér finnst það barasta hið fínasta lag – vona að það komist áfram! Svona bland af Friends- og Malcolm in the middle-lögunum og á alveg séns!
Ungverjaland
Söngkonan Magdi Rúzsa flytur (augljóslega) blúslagið Unsubstantial blues. Ég veit að þetta á að vera mjög vel unnið og klassamúsík – en mér leiðist lagið bara svo vel – góð söngkona. Held (og vona) að þetta eigi ekki séns!
Eistland
Ég veit eiginlega ekki hvað mér á að finnast um lagið Partners in crime með söngkonunni Gerli Padar. Það er eitthvað arfaslakt við það en samt fíla ég það betur en flest önnur lögin. Hún kemst samt varla áfram!
Belgía
Lagið Love power með The KMG's hljómar dálítið eins og blanda af Jamaariquai (eða hvernig sem það er stafað
, Earth Wind & Fire og This is the Night-tímabilið hjá Mezzoforte! Ekkert lag í sama stíl í keppninni og það á annaðhvort eftir að ganga upp eða skítfalla. Held að það komist líklega áfram, þótt það skorti sjarmann fyrir mig (þrátt fyrir að þetta sé almennt minn stíll!!!)
Slóvenía
Slóvenía hefur sent mörg frábær lög sem ekki hafa náð þeim árangri sem þau áttu skilið. Ég verð að vona að lagið Cvet z juga með frábærri söngkonu, Alenka Gotar, hljóti ekki sömu örlög. Algjör snilld – og ef flutningurinn tekst vel í Helsinki þá gæti þetta vel unnið keppnina!
Tyrkland
Það er eitthvað pínukúl við gæjann Kenan Dogulu og lagið Shake it up shekerim þótt ég sé ekkert of hrifinn af því! Held að hann komist nokkuð örugglega – og ekki bara út af Tyrkjum úti um alla Evrópu!
Austurríki
Veit ekki alveg hvað Austurríkismenn eru almennt að gera í júróheimum. Þeir eru allavega alltaf til í að prófa hluti. Vona samt að lagið Get a life - get alive með Eric Papilaya komist ekki áfram. Mér leiðist það!
Lettland
Söngflokkurinn Bonaparti.lv er óperu-boyband í anda Il Divo, þótt þeir séu alleldri og ómyndarlegri (nema einn). Lagið Questa Notte byrjar afar illa en skánar eftir því sem líður á. Vona að það komist ekki áfram en held að það komist líklega áfram enda hjálpar að vera sungið síðast. Plís ekki kjósa þetta!!!
Úrslitalögin
Þá er komið að lögunum fjórtán sem illu heilli eiga örugg sæti í úrslitunum:
Bosnía-Hersegóvína
Söngkonan Marija Sestic ríður á vaðið með laginu Rijeka bez imena. Þetta er alveg smekklegasta lag í x-júgó-stíl. Á alveg þokkalegasta séns á að komast upp fyrir miðju – sem er nokkuð erfitt fyrir flest lögin sem eru örugg áfram eiga eftir að slást um botnsætin!
Spánn
Spánverjar tóku sér góðan tíma til að velja fulltrúa sína í keppninni í ár - fyrst margar vikur í flytjandann, strákabandið NASH, sem svo þurfti að syngja fullt af lögum, fæst góð. Sænska lagið I love you mi vida vann þá loksins. Betra en framlag Spánar síðustu árin, en það segir svo sem ekki mikið. Verður mjög neðarlega.
Írland
Írar velja að vera þjóðlegir þetta ári og senda væmnasta tónlistarmyndband EVER fyrir lagið They can't stop the spring. Það er eitthvað ótrúlega gervilegt við þetta fyriræki allt, en gæti samt alveg gerst að hljómsveitin Dervish næði þokkalegu sæti á laugardaginn!
Finnland
Ég er alveg að fíla lagið Leave me alone með söngkonunni Hanna Pakarinen. Held að henni eigi alveg að takast að halda Finnlandi fyrir ofan miðju – þótt titillinn sé erfiður.
Litáen
Mér finnst eitthvað agalega heillandi við lagið Love or leave með 4Fun. Efast um að það fái mörg stig, en algjör klassi samt!
Grikkland
Söngvarinn Sarbel er næstum eins sætur Sakis fyrir nokkrum árum og lagið Yassou Maria er næstum jafngrípandi og Shake it. En bara næstum! Held samt að það komist inn á topp 10 á laugardaginn.
Svíþjóð
Svíar gera enn ein mistökin með að senda glamrocksveitina The Ark. Mér finnst lagið The worrying kind (eða ætti ég að leyfa mér að kalla það Spirit in the sky where my Rosemary goes???) alveg agalegt. Má bara ekki vinna! Og gerir það ekki...
Frakkland
Frakkar fengu slæma útreið í fyrra með lagi sem mér fannst mjög sjarmerandi. Núna reyna þeir með laginu L'amour à la Française með söngflokknum Les Fatals Picards. Það er eitthvað krúttlegt við þetta en gæti alveg dáið í lifandi flutningi (ég veit að þetta er hálfgerð mótsögn) – fer eftir hvaða lög raðast í kringum það úr forkeppninni. Á alveg séns...
Rússland
Stelpnatríóið Serebro ætlar sér greinilega að vinna með laginu Song # 1. Æi, ég held ekki – dálítið ‘not that innocent’ (eins og Britney söng...) – held að lagið tapi helling á því að vera öruggt í úrslit – hefði líklega unnið hefði það verið í forkeppninni. Spái því u.þ.b. 5. sæti.
Þýskaland
Enn gera Þjóðverjar góða tilraun til að drepa mig úr leiðindum. Roger Cicero er ágætissöngvari en swing á þýsku gengur ekki upp í mínum huga. Frauen regieren die Welt er kannske gæðalag fyrir alvöru tónlistarspekúlanta (og titillinn kannske ágætis hugmynd) en get ekki séð að þetta lag eigi mikinn séns. Pirrandi! Pirrandi! Pirrandi!
Úkraína
Vonandi verður Verka Serduchka eina dragdrottningin í úrslitunum á laugardaginn. Það er eitthvað agalegt við Dancing Lasha Tumbai þannig að það gengur upp! Vonandi verður það inni á topp 10.
Bretland
Æi, elsku Bretar. Þeir halda að Evrópubúum sé illa við þá og gefi þess þeim þess vegna engin stig. En það er bara af því að þeir senda hvað eftir annað hrylling á borð við Flying the flag (for you) með Scooch. Brandarinn gengur ekki upp og lagið enn síður. Líklega 0 stig á laugardag.
Rúmenía
Þoldi ekki Liubi, liubi, I love you með Todomondo þegar ég heyrði það fyrst en það vinnur á – hefur ágætan takt. Það verður spennandi að sjá hvað gerist, gæti orðið ofarlega en líka mjög neðarlega! Held að Íslendingar eigi eftir að gefa þessu um 7-8 stig.
Armenía
Söngvarinn Hayko hljómar nokkuð vel og lagið Anytime you need er alveg þokkalegt. Held að það gæti alveg orðið um miðbik stigatöflunnar, en ég efast eiginlega um það.