Reynsiboy í London!

á fullu í ritgerðarskrifum

17.02.2007 13:10:02 / reynsi

Júró í kvöld!

Jæja, þá er komið að úrslitakvöldinu í júró. Það verður að segjast að gæði laganna eru mjög misjöfn. Nokkuð af góðum flytjendum en lögin gætu flest verið mun betri, svo að ég taki nú ekki dýpra í árinni. Eins og áður hefur komið fram finnst mér lagið hennar Heiðu langbest, og síðan er Friðrik Ómar auðvitað frábær. Held með þeim! Það sem mér finnst skemmtilegast er að í ár er enginn öruggur sigurvegari að keppa, þannig að í fyrsta skipti í mörg ár getum við sent það lag sem flestum finnst best!

Og ástarþakkir fyrir allar góðu óskirnar í athugasemdum við síðustu færslu! Góð hvatning!


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 18:25:05 / reynsi

Orðinn PhD-nemi

Fór í umtalað PhD upgrade í gær. Mætti kl 1 og var inni í tæpan klukkutíma, kynnti verkefnið mitt og svaraði fyrirspurnum frá matsnefndinni sem var skipuð leiðbeinandanum mínum, fulltrúum deildarinnar og utanaðkomandi prófessor. Mér fannst þetta bara ganga vel, var heldur stressaður, en tókst ágætlega að svara fyrir mig. Og eftir nokkurra mínútna bið var mér sagt að nefndin hefði samþykkt að ég yrði formlega fluttur úr M.Phil. prógramminu yfir í Ph.D. Sem sé, verkefnið mitt er nógu stórt og vinnan mín ætti að ganga upp að þeirra mati.

Og eftir júró helgarinnar segi ég bara: ÁFRAM HEIÐA!!!!


» 11 hafa sagt sína skoðun