Reynsiboy í London!

á fullu í ritgerðarskrifum

29.05.2006 15:03:14 / reynsi

Er það D og B???

Og ég ekki fyrr búinn að skella pistlinum hér að neðan á netið þegar fréttir berast að Villi og Óli séu hættir að tala saman! Hljómar ágætlega þannig lagað séð, en ég verð að lýsa yfir áhyggjum af því ef grunur minn um að Björn Ingi sé kominn í viðræður við Sjallana er réttur! Við framsóknarmenn verðum að fara að læra af reynslunni - samstarf við Sjálfstæðisflokkinn hefur reynst okkur algjört fylgiseitur!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 13:42:46 / reynsi

Reykjavíkurlistinn 2010!!!

Þá er borgarstjórnarkosningunum lokið og kjósendur töpuðu! Borgarbúar misstu Reykjavíkurlistann og virðast vera að fá Sjallana og Frjálslynda yfir sig á ný, sem sé Villa og Óla F sem voru jú í meirihluta þegar borginni var svo illa stjórnað hér í denn, ekkert byggt nema minnisvarðar og þegar almenningur átti ekki rétt á leikskólaplássum, komst ekki einu sinni á biðlista. Það verður "spennandi" að sjá hvað þeim tekst að skemma á næstu fjórum árum!

Sjálfstæðisflokkurinn fagnar sigri þrátt fyrir að hafa hlotið næstverstu útkomu sína í borgarstjórnarkosningunum og telur sig hafa verið kosinn til valda. Rétt ca. 43 % kjósenda gerðu það - en heil 57 % gerðu það ekki. Sjálfstæðisflokkurinn er nefnilega meirihlutaflokkur. Allir hinir flokkarnir eru minnihlutaflokkar og kjósendur þeirra vita að þeir þurfa í samstarf og 57 % borgarbúa höfnuðu því Sjöllunum!!!

Og samanlagt fylgi Reykjavíkurlistaflokkanna hefði líklega dugað þeim til að halda meirihlutanum og það er sorglegast við þetta allt saman. Og hverjum er um að kenna þar - auðvitað Vinstri-grænum sem eru æðislegir í öllu nema að bera ábyrgð! Vinstri-grænum hentar nefnilega ekki að miðla málum, taka ákvarðanir sem ekki eru algjörlega eftir þeirra hugmyndum. Og þeir flúðu því af hólmi! Vonandi láta þeir þetta sér að kenningu verða!

x R 2010!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 13:50:56 / reynsi

Áframhaldandi gleði

Í gleðivímunni eftir sigur Finnanna, gleymdi ég alveg að segja frá því að bæði viðtölin sem ég fór í á föstudag gengu alveg svakavel. Sérstaklega það síðara. Held hreinlega að mér hafi aldrei tekist að selja mig eins vel og þarna inni. Enda var hringt í mig milli 2 og 3 sama dag og mér tilkynnt að nefndin ætlaði að mæla með að mér yrði boðið starf á Hawkridge þar sem ég bjó í fyrra.

Þetta þýðir að ég er á vakt fjórðu hverja helgi, og fjórar nætur að auki í mánuði, tilbúinn að láta fólk hafa aukadýnu sé það með gesti og aðstoða við ýmis viðvik. Þar að auki hjálpa til við að skipuleggja partý og svoleiðis.

Það er greinilegt að 19. maí, afmælisdagur Möggu frænku og Mette vinkonu er mikill happadagur á mínu heimili - í fyrra fékk ég Rannís-styrkinn þann dag!


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 16:36:06 / reynsi

HALLELÚJA!!!

Er svo glaður yfir úrslitum gærkvöldsins. Í fyrsta sinn í mörg ár (líklega síðan Ein bisschen Frieden vann hér um árið) sigraði besta lag júróvísjónkeppninnar! Og það Finnland af öllum þjóðum!!! Það kom svo á mig þegar ég fattaði að Lordi væri í raun að mala keppnina að ég hreinlega fór að gráta. Gat einfaldlega ekki hætt og grét alla stigakeppnina og í raun langt fram á nótt. Skildi í fyrsta sinn af hverju fullorðnir karlmenn geta farið að vola þegar liðið þeirra vinnur úrslitaleik í fótbolta! Held að ég hefði ekki orðið svona glaður þótt það hefði verið Ísland sem sigraði! Gleði gleði gleði!!!

Lifi símakosningin!


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 22:53:28 / reynsi

Ekki kjósa Bretland

Breski keppandinn Daz Sampson sagði í viðtali á BBC3 eftir keppnina í kvöld að Silvía Nótt hefði sýnt keppninni vanvirðingu og hefði hlotið það sem hún átti skilið. Ef hann (sem bæ ðe vei er með stelpur í skólabúningum að dufla við perraskap) hefur ekki húmor á hann ekki skilið eitt einasta stig frá Íslandi!

Sjálf stóð Silvía Nótt sig mun betur en ég átti von á og ég er stoltur af henni. Það er ekki henni að kenna að fólk fattaði ekki brandarann. Í staðinn fattaði fólk litáíska brandarann sem er eins einfaldur og "Skeist þú líka í deigið?"-brandarinn!

Ég segi því áfram Finnland og Bosnía á laugardag. Og endilega kjósiði líka Frakkland sem er með svo krúttlegt lag!


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 15:34:48 / reynsi

Allt að gerast!

Er orðinn einsetumaður aftur eftir að Mette fór heim um hádegisbilið. Og það er búið að vera mikið að gera hjá okkur! Fórum á sýningu um Modernisma á Victoria & Albert Museum á föstudag, horfðum á úrslitin í Carling-bikarnum á pöbb á laugardag og svo í Greenwich á sunnudag!

Er annars að prófarkalesa Eglu í dag, en þess á milli hef ég verið í símanum! Auðvitað út af júróvísjón sem ku vera í þessari viku. Ég er farinn að búast við allt of miklu af þýska laginu sem mér finnst reyndar alveg ofsaleiðinlegt! En það er víst fullt af smekklausu fólki í heiminum eins og m.a. sést af styrk George Bush, Anders Fogh og Davíðs Oddssonar í kosningum!

Síðan hefur síminn líka verið að hringja út af viðtölum fyrir húsvarðarstöður á nokkrum stúdentagörðum. Var valinn í viðtöl á tveimur stöðum fyrir 5 mismunandi hús, flest alveg við skólann, en líka Hawkridge þar sem ég bjó í fyrra. Bæði viðtölin eru á föstudag þannig að við vonum það besta - hvað sem það þýðir.

Reyndi að opna bankareikning hjá Nat West bankanum í morgun. Tókst ekki, og er núna að vona að netumsókn um námsmannareikning fyrir HSBC verði samþykkt! Þetta er fáránlegt!!!

Ef ég blogga ekki meira fyrir fimmtudag: ÁFRAM SILVÍA NÓTT!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 10:02:16 / reynsi

Afmæli pabba - Picasso og Chicago

Til hamingju með afmælið, pabbi minn! Vona að þú njótir dagsins og að kvöldið verði skemmtilegt!

Annars er ég búinn að vera svo menningarlegur að það hálfa væri nóg. Fór með Mette á Tate Modern safnið í gær og við skoðuðum margt skemmtilegt frá upphafi 20. aldar og fram til ca. 1960, m.a. Picasso, Matisse. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af Picasso og stíl hans, en ég skipti snarlega um skoðun þegar ég náði að skilja út á hvað sum verkin hans gengu! Algjör snillingur!

Síðan vorum við meira í lágmenningunni í gær þegar við fórum að sjá Chicago ásamt Thomasi vini okkar. Það var mikil og góð skemmtun, og sérstaklega stal X-Factor stjarnan Brenda (sem bara lenti í 4. sæti) senunni sem fangelsisstýran Mama!

Er að fara í smátíma núna og síðan er það víst safn Viktoríu drottningar og Alberts síðar í dag!


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 23:39:01 / reynsi

Hvernig ertu - hvernig ertu - hvernig ertu?

Linda kvartaði yfir bloggleysi síðustu viku og hér kemur smápistill. Enda líklega ekki mikill tími til að blogga næstu viku meðan Mette vinkona verður hérna í heimsókn!

Síðustu vikuna er ég búinn að vera að vinna í grein/fyrirlestri sem ég ætla að halda í Durham í ágúst. Átti að vera búinn að skila henni en fékk smáfrest. Greinin er núna í prófarkarlestri og vonandi þarf ég ekki mikið að laga hana áður en ég sendi hana af stað.

Þar fyrir utan er ég búinn að vera á "pínu"-djammi með Guðna um helgina. Fórum á King's Arms, Chunks og Fire á föstudagskvöldið og síðan á Duckie og MegaWoof á laugardagskvöldið! Á Duckie sá ég eitt fyndnasta dragshow sem ég hef séð, bandaríska "söngkonu" sem gerði stöðugt lítið úr Bretlandi og öllu sem ekki er bandarískt! Á undan henni var "skeggjuð" kona með 5 húlahringi sem kom aftur fram dansandi með nokkur hálsmen (og ekkert annað!!!) við Holding Out for a Hero)! Held að ég hafi aldrei horft eins hugfanginn á nakta konu áður ;)

Það verður ábyggilega mikið að gera með Mette næstu dagana, en líklega mun ég fá ögn meiri svefn en núna um helgina!!! Og júróvísjón á næsta leiti - keypti mér sjónvarp í síðustu viku og er búinn að vera að hita upp! Áfram Finnland og Ísland!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun