Það var notalegt að vera í Köben um helgina. Það var náttúrlega
ansi mikið sjokk að sjá fréttirnar af hörmungunum hér í London.
Þegar maður er á ferli í borginni án þess að verða vitni að öðru en
samgöngutruflunum áttar maður sig svo illa á því sem hefur gerst og
það var ekki fyrr en ég sá sjónvarpið að ég fattaði hvað hafði
gerst!
Eftir smámatarboð á fimmtudagskvöldinu heima hjá Mette fór ég á
Árnasafn og hitti fólk og vann aðeins. Náði að gera það sem ég
ætlaði mér en það verður nú að viðurkennast að stór hluti dagsins
fór í spjall, bæði um atburðina í London og svona almennt hvernig
gengi með verkefnið. Og svona ykkur að segja, það gengur ágætlega.
Eftir vinnu settumst við með bjór í góða veðrið, fyrst við
háskólann á Amager og síðan niður á Islands Bryggju, þar sem Svenni
bættist í hópinn. Síðla kvölds fórum við svo aðeins á Oscar og
hittum þar Þórhildi og Álfheiði fyrrverandi samkennara mína úr
Húsaskóla, og við Svenni fórum með þeim á skemmtistaðinn Absalon á
Strikinu. Þangað hafði ég aldrei komið áður og efast um að ég verði
mikið þar í framtíðinni. Hló samt mikið að kúnnahóp staðarins. Við
Álfheiður fórum nefnilega aðeins á dansgólfið og þar sem við bæði
erum sérlega hávaxin gnæfðum við yfir alla þar!
Á laugardaginn heimsótti ég Sanne og Jørgen, gamla vini mína af
Grönjordskollegíinu. Þau eru flutt í huggulega íbúð í Herlev ásamt
nýfæddri dóttur sinni. Hún fæddist 26. júní og heitir Ea. Það var
ljómandi gaman, Ea svaf allan tímann sem ég var þar, m.a. lengi í
fanginu á mér, og við borðuðum heimatilbúinn ís og jarðarber.
Á laugardagskvöldið héldum við Mette síðan partý fyrir vini
okkar og kunningja og þar var góður hópur fram undir morgun. Þrátt
fyrir það komum við okkur á fætur um hádegið daginn eftir, tókum
til og borðuðum koldskål, sem er svona hrærð súrmjólk með sykri
og (yfirleitt) eggjum og borðuð með kammerjúnkum.
Voðahressandi í hitanum. Að því loknu lölluðum við okkur á
Hellerup-ströndina þar sem við lágum aðeins og syntum í sjónum.
Mjög næs, sérstaklega þar sem ég náði að lokka hana í burtu áður en
ég varð að rjúkandi rúst!
Um kvöldið fórum við Mette svo með Svenna og Christian út að
borða á Christianshavn. Fengum þar verstu þjónustu í heimi en
matseðillinn var svo girnilegur að við létum okkur hafa það að bíða
í hálftíma eftir að fá að panta hann! Á
eftir fengu Svenni og Mette sér svo ís á Amagerbrogade og
við kíktum í örstutta óvænta heimsókn til Diljár og Kristins.
Gat náttúrlega ekki misst af því að sjá kúluna á henni! Og hún er
sem sé sett á afmælisdaginn minn, 20. nóv.!
Tók því svo nokkuð rólega í gær áður en ég fór út á flugvöll -
flugið var ekki fyrr en kl 18 að dönskum tíma. Hitti Svenna og
kíkti við á Árnasafni. Það var síðan eðlilega nokkuð vesen að
komast heim af Heathrow. Piccadilly-line gengur ekki eins og
vanalega út af sprengingunum og ég þurfti því að skipta tvisvar um
lest til að komast heim, og fara heldur lengri leið í þokkabót. Það
tók því á endanum ögn lengri tíma að komast heim af Heathrow heldur
en samtals ferðin út á flugvöll í Köben og flugið til London!
Hef samt lítið hitt af fólki og lítið upplifað hvaða áhrif
sprengingarnar hafa á daglegt líf hér í borg. Kemst líklega að því
í dag og næstu daga!