Reynsiboy í London!

á fullu í ritgerðarskrifum

30.06.2005 23:44:02 / reynsi

Duran Duran

Já, það kom að því, tuttugu árum síðar gátu jafnaldrar mínir sem voru í Duran Duran klúbbnum Hjá Hirti loksins látið drauminn rætast um að fara á tónleika með köppunum og ég vona að þeir hafi skemmt sér vel í kvöld. Mér varð hugsað til allra rifrildanna um hvorir væru betri Djúran eða Wham! (Hvammsbræður eins og Jón Ólafsson kallaði þá iðulega á Rás 2) og auðvitað hefur náttlega komið í ljós að George Michael stóð upp úr þessum flokk (fyrir utan það að Madonna var auðvitað betri en þeir allir). Sjálfur bar ég Wham!-barmerki og var í Wham!-klúbbnum (sem Hjá Hirti rak líka) en verð þó að viðurkenna að ég stalst til að hlusta á Wild Boys - með heddfónum nóta bene! Kem hér með út úr þeim skáp - ég var pínu Djúran-aðdáandi!

Besta sagan af æðinu öllu finnst mér þó alltaf aprílgabbið á Rás 2, 1986 minnir mig. Þá kynntu þeir nýtt lag með Duran Duran og viti menn, sama dag þegar fólk hringdi inn og kaus lög á vinsældarlista Rásar 2, hrúgaði þetta lag inn atkvæðum. Þegar listinn var kynntur á fimmtudegi var lagið þó hvergi að finna þótt það hefði líklega átt að vera á toppnum - jú, þetta var nefnilega gamalt lag með Spandau Ballet!!!

Áfram Wham!


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.06.2005 09:44:48 / reynsi

Merkisdagur!

Ætla að byrja pistil dagsins á því að óska góðum vinkonum til hamingju með afmælið. Prestmaddaman í Vestmannaeyjum, Sólveig Huld er 32 ára í dag, og sænski doktorsneminn í Osló, Ingela, er 27 ára. Það má til gamans geta þess að þær stöllur virðast vera hrifnar af tölunni 30; Sólveig Huld gifti sig 30. desember fyrir nokkrum árum og Ingela ætlar að ganga upp að altarinu 30. júlí nk.

30. júní hefur líka þokkalega þýðingu í mínu eigin lífi. Það eru nefnilega í dag 15 ár síðan ég byrjaði að skríða út úr skápnum fræga. Viðurkenndi þar með meðvitað fyrir sjálfum mér í fyrsta skipti að ég væri hommi og að þær tilfinningar og langanir sem gert höfðu vart við sig árum saman væru ekki bara eitthvað sem myndi líða hjá. Var nefnilega búinn að lesa allt fræðsluefni sem ég komst yfir um unglingsárin og tilfinningar stráka til annarra stráka. Tónninn í þeim öllum var: "Örvæntu eigi! Þetta líður að öllum líkindum hjá!" Sem sé, allar voru þessar bækur skrifaðar fyrir hina strákana, þessa þar sem þetta skeið leið hjá. Hvergi var beinlínis tekið á því hvernig við hinir ættum að takast á við að þetta gekk ekki yfir og þar sem ég var þarna kominn á 18. ár gat ég varla lengur notað táningsárin sem afsökun :S

Eftir skápsdvölina var ég auðvitað með náladofa og því voru skrefin út nokkuð óstyrk en um leið í rétta átt. Og allt tókst þetta betur en mig hafði nokkurn tíma getað grunað þökk sé yndislegri fjölskyldu og vinum!

Að lokum langar mig að benda á ofsaskemmtilegt blogg maddömu nokkurrar í Kaupmannahöfn. Stúlkan sú er nafnlaus á síðunni sinni en ég held nú samt að kannist við dömuna. Slóðin er www.maddaman.blogspot.com og ég set líka tengil á hana hér til hliðar.


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.06.2005 15:25:46 / reynsi

Blowing Whistles

Gleymdi að segja frá því að við Guðni vorum dálítið menningarlegir. Við fórum nefnilega alla leið til Croydon á leikrit sem heitir Blowing Whistles. Mjög skemmtilegt en um leið alvarlegt verk um 10 ára samband tveggja manna og hvernig það leysist upp. Það eru einhverjar sögur um að leikritið flytji jafnvel á West End og verði það raunin get ég alveg mælt með að fólk nái sér í miða!

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.06.2005 04:59:56 / reynsi

Þokkalega pirraður!!!

Var í kveðjupartýi fyrir Hannes vin minn hérna í London í kvöld. Hann var að útskrifast úr hönnunaskóla hér í borg og er að flytja heim, því er nú verr og miður. Kíktum á ekta japanskan karaókístað (með einkaklefum) á eftir venjulegan pöbb og ég ákvað að taka leigubíl heim - eftir að hafa nánast verið grátbeðinn um það af leigubíladíler í Sóhó. Lenti á bílstjóra sem við nánari kynni var svo hómófóbískur að ég bauð honum að stoppa og setja mig út þar sem ég kunni ekki við hvernig hann talaði - var frekar til í að labba heim en borga einhverjum fyrir að halda ræðu um vanþóknun Guðs á hommum! Hann ákvað þó að sætta sig heldur við trúleysið en að verða af aurnum!!! Og ég segi bara:

Helvítis PAKK!!!

Nenni nefnilega engan veginn að hafa verið 15 ár (eða þar um bil) úr skápnum og ætla allt í einu núna eftir öll þessi ár að samþykkja að einhver Sómali segi mér fyrir verkum! Og hvað er maðurinn líka að reyna að pikka upp kúnna í Soho??? - Maður getur nefnilega ekki verið "réttlátur" en um leið grætt pening á hommunum!!!! Þið skiljið vonandi reiði mína! Hef sjaldan verið eins sjóðandi fúll enda hefur þetta með sjálfan mig og mína að félaga að gera!

Það er nefnilega eitt að bera virðingu fyrir skoðunum annarra en þokkalega annað að samþykkja skoðanakúgun annarra á manni sjálfum!!!!!!!!!!! Og ykkur öllum að segja: Það líð ég bara ekki!

Og ég vona að þið gerið það ekki heldur!


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.06.2005 22:29:49 / reynsi

Til hamingju með daginn Freyja Finns

Ef mig misminnir ekki þá á hún Freyja frænka mín Finnsdóttir 23 ára afmæli í dag og ég óska henni hjartanlega til hamingju með daginn!

Annars er bara allt gott að frétta héðan úr hitabylgjunni sem er komin í smápásu - sem betur fer gæti maður sagt en sannleikurinn er bara sá að eins mikið og maður kvartaði yfir hitanum síðustu daga þá verð ég að leyfa mér að kvarta yfir kuldanum í gærkveldi og í morgun! Í dag hefur aftur á móti verið fínasta veður - alveg mátulega hlýtt þannig að það er víst hægt að gera manni til geðs þótt erfitt sé!

Guðni er búinn að vera í heimsókn síðan aðfararnótt miðvikudags. Við höfðum ekki sést síðan í febrúarbyrjun þannig að það voru fagnaðarfundir! Og endurfundunum var fagnað úti um allan bæ síðustu daga þannig að nokkur kíló hafa fokið á rölti og á dansgólfum. Nú er bara að passa að þau komi ekki aftur 8|

Annars fór Guðni í kvöld, átti að fara með Æslandexpress, en var rétt kominn af stað með rútunni þegar fréttir bárust að fluginu hefði verið frestað þangað til í fyrramálið þannig að hann er bara í vellystingum á SAS-hótelinu við Stansted.

Ég get síðan ekki látið orða bundist um fréttina á www.mbl.is í gær um að 35% Íslendinga finnist konur ekki eiga jafnan rétt á vinnu og karlar þegar atvinnuástand er slæmt. Ég hvái bara! Og skammast mín fyrir landa mína! Það er ekki nema von að launajafnrétti náist ekki í svona þjóðfélagi. Fussum svei!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2005 23:04:43 / reynsi

19. júní

Konur, til hamingju með daginn! Það er ástæða til að fagna öllum þessum merku tímamótum en betur má ef duga skal. Það er gjörsamlega ótækt að launamunur sé enn svo mikill hvað þá að hann fari vaxandi í skjóli launaleyndar! Að sama skapi er óásættanlegt að áhrif kvenna í stjórnmálum vaxi ekki, og minnki jafnvel - að ungum og upprennandi konum sé ýtt til hliðar fyrir strákana. Hér á ég auðvitað við flokkssystkini mín og hvernig Siv missti ráðherradóm þegar Halldór fékk Stólinn góða! Siv er sá framsóknarþingmaður sem er með næstflesta kjósendur að baki sér (Valgerður með flesta)! Hefði einhverjum stráknum verið ýtt til hliðar í þessari stöðu??? Og af hverju sættum við framsóknarfólk okkur við þetta???

Það má ekki sofna á verðinum í jafnréttismálum, strákaklíkurnar eru enn við sama heygarðshornið og það má bara ekki leyfa þeim það! Mér þótti þess vegna leiðinlegt að það skyldu ekki fleiri en 1500-2000 hafa mætt á Þingvöll í dag. Hefði flykkst þangað hefði ég verið heima!

Talandi um hátíðarhöld, þá hafði ég hugsað mér gott til glóðarinnar að fara á Íslendingafagnað hér í London nú um helgina enda vanur mikilli skemmtun í Köben. Þegar ég fór að kanna hvar þetta yrði haldið, kom í ljós að haldið var upp á 17. júní síðasta sunnudag! Það var nú meiri vitleysan, auðvitað á að nota þá helgi sem næst er þjóðhátíðardeginum sjálfum!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.06.2005 11:32:43 / reynsi

Hæ hó jibbí jei...

Gleðilega þjóðhátíð öll sömul! Vona að þið njótið dagsins! Er sjálfur bara í rólegheitunum í dag í tilefni dagsins og ætla lítið að vinna. Fer reyndar í leshópinn í kvöld, erum að lesa Orkneyingasögu, og ætla að taka heimatilbúið kjúklingasalat, brauð og hvítvín með þannig að ég þarf að skreppa í búð og kaupa hráefnið í salatið. Annars bara rólegheitahelgi framundan, smáafmæli hjá hinni áströlsku Megan á morgun og síðan bara safna kröftum fyrir heimsókn Guðna!


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.06.2005 00:21:36 / reynsi

Þokkalega sexý!

Eftir doða síðustu daga ákvað ég að skella mér í bíó í kvöld og fór á Mr & Mrs Smith. Þetta var hin ágætasta skemmtun, ég hló mikið og hélt mikið með þeim báðum, samt aðallega frúnni verður að viðurkennast! Skötuhjúin Brad og Angelina (sem allir slúðurmiðlar keppast við að sannfæra okkur um að séu heitasta parið) eru funheit og passa svakavel í hlutverkin. Glaður var ég líka að sjá Brad leika betur en í Trójustríðinu hér í fyrra! Það þurfti kannske heldur lítið til...

Annars gladdi það mig mest að sjá auglýsingu fyrir nýjustu Harry Potter-myndina virkar ofsaspennandi enda er þetta náttúrlega besta HP-bókin - og líklega bara með betri bókum sem ég hef lesið um dagana. Er þó dáldið smeykur um að allt of miklu þurfi að sleppa úr bókinni - nema náttlega að myndin verði 8 tímar! Maður getur vonað... Og sjötta bókin að koma út eftir mánuð! Jei!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2005 11:26:16 / reynsi

Þeir eiga afmæli í dag! Þeir eiga afmæli í dag! Þeir eiga á afmæli ...

Jón Freyr og Þórhallur Elí! Þeir eiga afmæli í dag! Hjartanlega til hamingju með tuttuguogníu ára og níu ára afmælin, elsku frændur! (Níu ár - voða líður tíminn hratt - trúi ekki að það séu níu ár síðan ég var í Finnlandi.) Vona að þið njótið dagsins. Bestu kveðjur til beggja fjölskyldna!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.06.2005 18:38:55 / reynsi

Enn valda Ítalir mér vonbrigðum!

Fréttirnar frá Ítalíu um of litla þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina eru mér mikil vonbrigði. Að kaþólska kirkjan dirfist að hvetja fólk til að sniðganga atkvæðagreiðslu ber vott um hversu litla virðingu stofnunin ber fyrir lýðræðinu enda gerir hún hvað sem er til að sýna hve valdamikil hún er. Þessi svívirðing sýnir enn einu sinni hversu hættuleg kaþólska kirkjan er, og boðar ekki betri tíð með nýjum páfa! Það er nefnilega eitt að hvetja fólk til að greiða atkvæði á ákveðinn hátt en allt annað gildir um hvatningu til að taka ekki þátt í kosningum!

Einhverjir vilja þó halda því fram að þátttökuleysið í þjóðaratkvæðagreiðslunni hafi aðallega markast af áhugaleysi á málefninu. Það eru ekki síður uggvænlegar fréttir en áhrif kaþólsku kirkjunnar. Kjósendur sem ætla bara að kjósa um þau mál sem þeir hafi beinan áhuga á, grafa undan lýðræðinu. Þeir geta nefnilega ekki ætlast til að hinir komi og kjósi þegar þeim hentar!


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2005 00:06:50 / reynsi

Ásthildur átti afmæli 10. júni

Mig langaði bara að skella afmæliskveðjum til gamallar (og þó síungrar (but of course we like your silungur - en auðvitað vill hann vera síungur)) og góðrar vinkonu, Ásthildar agnar sem er í améríku! Við sjáumst vonandi í sumar - er það ekki annars? Varla verða danskir dagar án hennar??????????


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.06.2005 12:29:18 / reynsi

Íbúprófen og hjartaáföll

Er ekki glaður yfir fréttum RÚV um að það sé samband milli notkunar á íbúprófeni og hættu á hjartaáföllum. Hvernig á maður þá að ná úr sér þynnkunni?

Og gleymdi alveg að segja frá því að ég hefði betur sleppt því að hamast við að þrífa eldavélina um daginn. Meðleigjandanum tókst nefnilega að gleyma henni í gangi og eyðileggja hana þannig að við erum búnir að fá nýja fína plötu. Það er reyndar spurning hvort hún geti talist fín lengur þar sem hann bara þrífur hana ekki eftir notkun! Þokkalega pirrandi!


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.06.2005 11:18:00 / reynsi

Og Vala bara hætt!

Það þykja mér sorgleg tíðindi. Hef alltaf verið að vona að hún myndi ná sér úr þeirri lægð sem hún hefur verið undanfarin ár. En auðvitað skilur maður líka að það er ekki endalaust hægt að æfa þegar maður er leiður á greininni sinni. Vonandi verður þetta bara stutt frí. Vala er enn ung kona og hetja eins og hún getur alveg komið aftur enn sterkari ef hún fær aftur keppnis- og æfingagleðina sem geislaði svo af henni hér áður fyrr.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2005 22:29:07 / reynsi

Platlífi lokið

Linda er farin og lífið fer þá líklega að færast í hversdagslegar skorður. Lifðum heldur betur platlífi nú um helgina. Hótelið sem við gistum á var nefnilega ekkert venjulegt Mariott-hótel heldur féll undir 5 stjörnu línu fyrirtækisins, Renaissance-hótelin, og heitir Chancery Court Hotel (sjá myndir á http://www.londonby.com/chancerycourt/). Og ekki nóg með það, við vorum í einu af betri herbergjum hótelsins. Svo að ég lýsi þessu nú aðeins: Þegar við komum að hótelinu héldum við að við værum á röngum stað, það er nefnilega mjög glamúrös aðkoma, dyraverðir og pikkolóar. Anddyrið er risastórt, mjög smekklegt og þjónustan í móttökunni mjög persónuleg en látlaus. Herbergið sjálft var svo á tveimur hæðum; á efri hæðinni var anddyri, risastórt baðherbergi (bæði með stóru baðkari og stórri sturtu) og skrifborðskrókur, á þeirri neðri var svo stórt svefnherbergi með risarúmi og auðvitað sjónvarp og playstation. Það var heldur ekki nóg með að það væri búið um rúmið og gert hreint fyrri part dags heldur var komið um kvöldið og rúmteppið tekið af og súkkulaðimolar lagðir á sængina. Að auki lá þar alltaf miði með veðurspá morgundagsins þannig að maður gat tekið regnhlífina (sem auðvitað fylgdi herberginu) með ef það skyldi nú rigna!

Í gærkveldi fórum við svo í leikhús, sáum Chitty Chitty Bang Bang og skemmtum okkur konunglega. Ofsalega vel heppnuð sýning og frábær stemmning. Við sátum fyrir aftan konur sem eftir sýninguna kommentuðu á hvað við höfðum skemmt okkur vel og það kom í ljós að þær voru mamma og amma eins af strákunum í sýningunni og þær voru að sjá hana í 15. og 12. skipti. Væri alveg til í að slást í hópinn og sjá þetta aftur. Mæli eindregið með sýningunni ef fólk á leið hér um! 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.06.2005 13:47:12 / reynsi

Langt síðan síðast!

Það er allt Lindu að kenna hvað ég hef verið þegjandalegur hér á síðunni síðustu daga. Við erum búin að vera á þvílíku flakki síðan hún kom á þriðjudag, aðallega um bæinn, en einnig upp í sveit. Margt hefur á daga okkar drifið, á miðvikudagskvöld fengum við sjokk þegar við sáum, úr strætó, þegar ekið var á gangandi vegfaranda á gangbraut, á fimmtudagsmorgun sáum við svo mann leiddan út af King's Cross lestarstöðinni í handjárnum, en flest hefur nú verið jákvæðara en það. Skruppum til Cambridge í gær, löbbuðum þar um bæinn og fórum í siglingu á ánni þar sem okkur voru sýndar helstu byggingar tengdar háskólanum þar. Höfum líka verið dugleg við að grynnka á namminu sem Linda tók með sér að heiman. Er þó ekki búinn að vígja kokteilsósuna og kartöflukryddið, það verður að bíða eitthvað ;)

Núna erum við að pakka og fara á hótel - Linda notaði nefnilega frípunkta til að bóka 2 manna herbergi á Marriot niðri í Covent Garden og þar ætlum við að horfa á sjónvarp og borða nammi alla helgina. Sjónvarp, Guð hvað ég hlakka til :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun